Currently viewing the category: "Bankamál"

Gagnrýnin hugsun hefur ekki átt upp á pallborðið í íslenskri þjóðmálaumræðu. Umræða um málefni lífeyrissjóða hefur verið því marki brennd fram til þessa og það hefur verið áhugavert að fylgjast með henni í kjölfar þeirrar skýrslu sem lífeyrissjóðirnir létu sjálfir gera og var kynnt var nú fyrir helgi. Skýrslan sýnir að tap lífeyrissjóðanna var verulegt og augljóst er að það þarf að fara málefnalega og af yfirvegun yfir starfsemi þeirra og starfsumhverfi.
Áhugaverðast hefur þó verið að fylgjast með skrifum formanns ASÍ sem hefur gagnrýnt skýrsluna harðlega. Hann færir fyrir því rök að tapið hafi ekki verið svo mikið eftir allt saman og einnig hefur verið bent á að tapið sé svipað og hjá öðrum lífeyrissjóðum í Evrópu.
Sérfræðingahópur Jóhönnu
Gylfi minnist hinsvegar ekki á  að stærsta einstaka ástæðan fyrir ávöxtun lífeyrissjóðanna eftir bankahrun er verðtryggingin. Hann gleymir líka að nefna að Jóhanna Sigurðardóttir þáverandi félags- og tryggingamálaráðherra fól honum þann 27. október 2008 að leiða sérfræðingahóp sem falið hefur verið að skoða hvort og þá hvaða leiðir séu færar til að bregðast við vanda lántakenda vegna verðtryggingar. Samfylkingin þekkir vel til þessa hóps þar sem að einn af þingmönnum hennar Sigríður Ingibjörg Ingadóttir var starfsmaður hópsins.
Niðurstaða hópsins var að taka ekki á vanda lántakenda með verðtryggð lán. Síðan þá hefur verðtryggingin kostað lántakendur um það bil 220 milljarða króna. Þetta er þungur baggi fyrir heimilin í landinu og hefur átt sinn þátt í að skapa það ófremdarástand sem nú ríkir í fjármálum heimila landsins. Það er mitt mat að, sama hvaða skoðanir fólk hefur á verðtryggingunni, geti fáir mótmælt því að ef einhvern tímann var nauðsynlegt  að taka hana úr sambandi, í það minnsta kosti tímabundið, þá var það í kjölfar vinnu Gylfa og sérfræðingahópsins.
Reikningurinn sendur á skuldug heimili
Ákvörðun Gylfa og sérfræðingahópsins hafði það hins vegar í för með sér að hægt var að „fela“ tap lífeyrissjóðanna þannig að það væri mun minna en raun bar vitni. Það má færa sannfærandi rök fyrir því að í þessari ákvörðunartöku hafði Gylfi ekki haft hagsmuni umbjóðenda sinna í ASÍ að leiðarljósi því hið raunverulega tap lífeyrissjóðanna færðist beint yfir á skuldug heimili í gegnum verðtrygginguna. Þau borga allt í boði Gylfa og Jóhönnu.
ASÍ, Samfylkingin og ESB
Í stað þess að gæta hagsmuna launafólks gerir Gylfi hvað hann getur til að koma þjóðinni inn ESB. Hann er einn af fáum einstaklingum í Evrópu sem dásamar Evruna og er búinn að setja áróðursmaskínu ASÍ í að reyna að fegra hana eins mikið og kostur er. Í þeirri umræðu nefnir hann ekki útgjöld þeirra sem að búa í ESB við að halda henni  á lífi.
Það er algjör samhljómur á milli hans og Samfylkingarinnar þar sem að þessi stjórnmálaöfl segja í fullri alvöru að ekkert er hægt að gera í verðtryggingarmálum þjóðarinnar nema að taka upp Evru! Þetta er fullkominn fyrirsláttur. Ef formaður ASÍ og forsætisráðherra eru svona mikið á móti verðtryggingunni af hverju lögðu þessir aðilar ekki til að kippa henni tímabundið úr sambandi á þeim tímapunkti sem að það hefði skilað launþegum þessa lands raunverulegum kjarabótum?

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra talaði um það í þinginu væri nú lítið mál að upplýsa um nýju einkavæðingu bankanna áðan. Fyrr í vikunni gaf fjármálaráðherra fyrirheit um stefnubreytingu hjá ríkisstjórninni hvað varðar upplýsingar til þings og þjóðar. Ráherra talaði eins og nú færi ríkisstjórnin að upplýsa um  hluti sem að ekki hefur verið nokkur leið að fá upplýsingar um fram til þessa. Þrátt fyrir ótal tilraunir. Það er hægt að nálgast orðskiptin okkar hér.

Bréfið sem að ég sendi til ritara Efnahags- og viðskiptanefndar er hér:

Sæll Eiríkur Áki

Ég fer fram á að fá öll fylgigögn með hluthafasamkomulögunum sem gerð voru þegar að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur gekk frá samkomulagi á milli gömlu og nýju bankanna. Ég hef fengið samkomulögin sjálf en það vantar öll fylgiskjöl.

Einnig vil ég fá fylgiskjölin með kaupsamningi á milli Byrs og Íslandsbanka.

Kær kveðja

GÞÞ

p.s Ég geri ráð fyrir því að fá þessi gögn fljótt ekki síst í ljósi yfirlýsinga fjármála- og forsætisráðherra.