Sjálfstæðisstefnan
Mörg verkefni bíða við endurreisn íslensk efnahagslífs. Mitt leiðarljós sem forystumanns Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík er sjálfstæðisstefnan og grasrótin, fólkið. Ég vil nýta þann mikla mannauð sem er í flokknum, ná betur til fleiri flokksmanna og styrkja tengslin, t.d. við launþegasamtök. Gera þarf flokksmanninn virkari í störfum og stefnumótun innan flokksins og lít ég þá m.a. til þeirra möguleika sem felast í nýrri samskiptatækni. Í öllum störfum er brýnt að sýna ráðvendni og gagnsæi og virða það grundvallarviðhorf að frelsi fylgir ábyrgð. Verkefni okkar í Sjálfstæðisflokknum er að setja öll mál á dagskrá, ræða þau og vinna að lausn þeirra með þjóðinni. Á komandi landsfundi þurfum við að ákveða að kosið verði um aðild að Evrópusambandinu í kjölfar könnunarviðræðna. Þannig sýnum við fólkinu í landinu virðingu og traust. Við þurfum að leggja fram peningamálastefnu sem skapar stöðugleika í þjóðfélaginu. Við þurfum að byggja upp atvinnulífið með öflugri mennta- og nýsköpnarstefnu þar sem stutt er við bakið á unga fólkinu í landinu. Sjálfstæðistefnan setur fólkið í landinu í fyrsta sæti og hefur alltaf unnið undir kjörorðunum stétt með stétt. Þess vegna er mikilvægt að við komum atvinnulífinu til aðstoðar á þessum erfiðum tímum með því að fara strax í mannfrek verkefni sem eru þjóðhagslega hagkvæm. Þar má t.d. nefna tónlistarhúsið, háskólasjúkrahús, viðhaldsverkefni og önnur mannfrek verkefni sem nauðsynlegt er að ráðast í.
Ég hef aldrei hrifist af hugmyndum um hækkun skatta til að auka tekjur ríkisins. Hafi einhvern lærdóm mátt draga af síðastliðnum 20 árum þá er hann sá að hækkun skatta minnkar skatttekjur þjóðarinnar. Sú formúla að auka útgjöld og vonast til þess að tekjur aukist með auknum skattbyrðum gengur ekki upp. Hærri skattar draga úr hvata atvinnulífsins. Um þetta eru sjálfstæðismenn sammála og ef einhvern tíma var þörf á að halda þessum sannindum á lofti þá er nú nauðsyn. Ég treysti mér vel í það verkefni að sporna gegn frekari álögum á fólkið í landinu í formi skattahækkana. Fái ég til þess stuðning mun ég ekki bregðast. Mitt markmið er að afla sjálfstæðisstefnunni fylgis á ný og vinna að bættum hag Reykvíkinga sem fyrsti þingmaður þeirra.