Heimahjúkrun efld - Guðlaugur Þór stóð fyrir markvissum aðgerðum til að styðja við búsetu aldraða og langveikra í heimahúsum. Það var gert með eflingu heimahjúkrunar og heimaþjónustu, fjölgun hvíldar- og endurhæfingarrýma, eflingu geðheilbrigðisþjónustu fyrir aldraða, auknu aðgengi að greiningu og sérhæfðri meðferð í öldrunarlækningum. Þá var úrræðum í dagþjálfun og skammtímarýmum fyrir heilabilaða fjölgað.
- Á síðasta ári var 300 milljónum kr. veitt í að stórauka heimahjúkrun við aldraða og
gera þeim kleift að búa heima eins lengi og kostur er. Þrátt fyrir stórfelldan niðurskurð til heilbrigðismála í fjárlögum ársins 2009 tókst að verja 400 milljóna króna fjárveitingu sem ætlað er að efla heimahjúkrun enn frekar á þessu ári. Mismunandi leiðir eru farnar að þessu markmiði eftir sveitarfélögum. Í Reykjavík hefur þannig farið í gang tilraunaverkefni til þriggja ára þar sem heimahjúkrun er flutt til sveitarfélaga með þjónustusamningi.
|