Lyfjakostnaður lækkaður um 1,5 milljarð króna
- Útgjöld til lyfjamála eru stærsti einstaki kostnaðarliðurinn í heilbrigðismálum á eftir launakostnaði. Nam kostnaður Sjúkratrygginga Íslands vegna lyfja rúmum 9 milljörðum króna á síðasta ári. Eitt fyrsta verk Guðlaugs Þórs sem heilbrigðisráðherra var að fara ítarlega ofan í saumana á lyfjakostnaði með það fyrir augum að lækka lyfjakostnað sjúklinga annars vegar og draga úr lyfjakostnaði ríkisins hins vegar.
- Á síðasta ári var gripið til margvíslegra aðgerða til að halda aftur af kostnaðarhækkunum vegna lyfja. Gróflega áætlað lækkaði lyfjaverð um 1,5 milljarða króna ef miðað er við útsöluverð lyfja og lyfjaveltu síðasta árs.