LSH viðsnúningur í rekstri og unnið á biðlistum
- Í kjölfar breytinga á stjórnun LSH þar sem hvatt var til valddreifingar og dreifðrar ábyrgðar stjórnenda varð verulegur viðsnúningur á rekstri LSH. Rekstrarhalli spítalans árið 2008 var um 1% að teknu tilliti til gengisáhrifa samanborið við 5,5 % halla á sama tímabili árið áður. Á sama tíma var vaxandi eftirspurn eftir þjónustu spítalans. Verulegur árangur náðist í að vinna á biðlistum og heyra gangainnlagnir um nætur sögunni til. Sumarstarfsemi var meiri síðasta sumar en mörg sumur þar á undan vegna formlegrar samvinnu LSH og Kragasjúkrahúsanna (Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Heilbrigðisstofnunar Akraness og St. Jósefsspítala)
sem Guðlaugur Þór efndi til í ársbyrjun 2008.
- Sjúklingar á LSH sem voru með vistunarmat og biðu varanlegrar vistunar voru 139 í lok janúar 2008. Undir lok ársins hafði nær tekist að eyða þessum biðlistum. Áhersla stjórnvalda og stjórnenda spítalans á að eyða biðlistum á öldrunardeildum og góður árangur í rekstri hefur styrkt spítalann í sessi sem raunverulegt bráðasjúkrahús Íslendinga. Þessu má lýsa þannig að hefði skapast neyðarástand í Suðurlandsskjálftanum 29. maí 2008 hefði LSH getað tekið við rúmlega 50 sjúklingum frá svæðinu. Hefði slíkt neyðarástand komið upp í maí 2007 hefði Landspítalinn aðeins með góðu móti getað tekið við 10 sjúklingum.