Guðlaugur Þór er fæddur í Reykjavík 19. desember árið 1967. Foreldrar hans eru hjónin Þórður Sigurðsson, fyrrverandi yfirlögregluþjónn í Borgarnesi, og Sonja Guðlaugsdóttir bókari. Guðlaugur er kvæntur Ágústu Johnson framkvæmdastjóra og líkamsræktarfrömuði og eiga þau saman tvö börn en Ágústa á tvö börn frá fyrra hjónabandi.