• Forsíða
  • Um Guðlaug Þór
    • Helstu áherslumál
    • Ferilskrá
    • Fyrri verk
    • Framtíðarsýn
  • Greinar
  • Alþingi
    • Spurningar
    • Svör
    • Frumvörp
    • Þingsályktunartillögur
  • Myndbönd
  • Fjölmiðlaumfjöllun
RSS
Guðlaugur Þór

Visir.is – Ólíklegt að nauðasamningar klárist fyrir kosningar

By Gudlaugurthor On January 9, 2013 · Add Comment · In Alþingi, Bankamál, Efnahags- og viðskiptanefnd
Tweet
visir.is 9.1.2013 : Litlar líkur eru á því að nauðasamningar við kröfuhafa gömlu bankana nái fram að ganga fyrir kosningar, segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi í efnahags- og viðskiptanefnd. Nefndin fundaði í morgun. „Maður er rólegri eftir þetta,” segir Guðlaugur Þór en Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri mætti fyrir nefndina í morgun og fundað verður áfram frameftir degi. „Eftir yfirferð nefndarinnar og upplýsingar sem okkur hafa borist eru litlar líkur á því að þetta gerist fyrir kosningar,” segir Guðlaugur Þór, en upphaflega stóð til að samningarnir gengu í gegn núna um áramót. Aðspurður segir Guðlaugur ekkert fyrirséð hvenær þetta muni gerast. Þá segir Guðlaugur að sér virðist sem mikill vilji sé til þess að lögum verði breytt þannig að aðkoma þingsins verði tryggð þegar verið er að taka ákvarðanir sem hafa áhrif á stóra gjaldeyrisáhættu hjá þjóðinni, líkt og í þessu tilfelli.
Lesa meira
Guðlaugur Þór

Visir.is – Mistök í nauðasamningum myndu hafa gríðarleg áhrif á íslensk heimili

By Gudlaugurthor On January 4, 2013 · Add Comment · In Alþingi, Bankamál, Efnahags- og viðskiptanefnd
Tweet
visir.is 4.1.2013 : Guðlaugur Þór Þórðarson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis, hefur ásamt Pétri Blöndal samflokksmanni sínum, krafist fundar í nefndinni. Þeir vilja ræða stöðu nauðasamninga föllnu bankanna. Guðlaugur Þór segir í tölvubréfi sem hann sendi Helga Hjörvar, formanni nefndarinnar, að ekki hafi tekist að klára að fara yfir málið á síðustu dögum þingsins. Það sé skilningur þeirra að ekki verði gengið frá samningunum af hálfu Seðlabankans að svo stöddu. „Að öllu óbreyttu mun meginhluti erlends gjaldeyrisvaraforðasjóðs landsmanna verða greiddur út ef að nauðasamningum verður. Gjaldeyrisvaraforðasjóðs sem að stærstum hluta er fjármagnaður af lánum með ríkisábyrgð,” segir Guðlaugur Þór. Einnig verði auðveldara fyrir kröfuhafa bankanna að fara á svig við gjaldeyrishöftin eftir að þeir eru komnir með eignarhald á bönkunum. „Seðlabankinn hefur úrslitavald í þessu máli en það er nauðsynlegt að efnahags- og viðskiptanefnd þingsins sinni laga- og eftirlitshlutverki sínu í þessu gríðarlega stóra máli. Ef gerð [...]
Lesa meira
Guðlaugur Þór

Vb.is – Guðlaugur Þór vill fá svör um hve stórt hlutfall af tekjum greiðendur auðlegðarskatt þurftu að reiða fram

By Gudlaugurthor On December 20, 2012 · Add Comment · In Alþingi, Fjármál, Skattamál, Spurningar
Tweet
Viðskiptablaðið 20.12.2012: Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sendi í dag fyrirspurn til fjármála- og efnahagsráðherra um auðlegðarskatt og hve hátt hlutfall greiðenda greiddu í auðlegðarskatt miðað við tekjur sínar á síðasta ári. Fyrirspurnin er í fjórum liðum og vill Guðlaugur meðal annars fá að vita hve stór hluti greiðenda greiddi meira í auðlegðarskatt en þeir höfðu í tekjur. Rúmir 8 milljarðar voru lagðir á í skatt af eignum 5.212 einstaklinga við síðustu áramót. Skatturinn er tvískiptur en almenni skatturinn var 5,6 milljarðar og hækkaði um 16,6% frá fyrra ári. Viðbótarauðlegðarskattur, sem lagður er á muninn á nafnverði og raunvirði hlutabréfaeignar í árslok 2010, var rúmir 2,4 milljarðar, eða 38,4% hærri en árið á undan. Eins og kom fram í Viðskiptablaðinu eftir að álagningarskrár voru opinberaðar þá var það Skúli Mogensen og kona hans, Margrét Ásgeirsdóttir sem greiddu mest í auðlegðar- viðbótarauðlegðarskatt fyrir árið 2011. Hrein eign þeirr anam um 7,5 [...]
Lesa meira
Guðlaugur Þór

Fyrirspurn til forsætisráðherra um hækkun á skuldum heimilana vegna skattahækkana ríkisstjórnarinnar – myndband

By Gudlaugurthor On December 5, 2012 · Add Comment · In Alþingi, Myndbönd, Skuldamál, Spurningar
Tweet
Ég beindi fyrirspurn til hæstvirts forsætisráðherra um áhrif skattahækkana í fjárlagafrumvarpinu á skuldir heimilana í landinu. Hæstvirtur forsætisráðherra svaraði og sagði m.a. þetta: “Hann er oft að leika sér hér í ræðustól”
Lesa meira
Guðlaugur Þór

Mbl.is – Hækkar lán heimilanna um 3 milljarða

By Gudlaugurthor On December 5, 2012 · Add Comment · In Alþingi, Skattamál, Vinstristjórnin
Tweet
„Það var upplýst á fundi efnahags- og viðskiptanefndar í dag að hækkun tóbaksskattanna muni leiða til hækkunar lána heimilanna um 3 milljarða króna að lágmarki fari þetta óbreytt í gegn. Þar er aðallega verið að tala um tóbaksgjaldið,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Vísar hann þar til fjárlagafrumvarps ríkisstjórnarinnar vegna ársins 2013 sem er til umfjöllunar á Alþingi en stjórnarandstæðingar hafa meðal annars gagnrýnt frumvarpið fyrir það að vera verðbólguaukandi. Guðlaugur segir að eftir sé hins vegar að reikna áhrif annarra skattahækkana á neysluvísitöluna og þar með lán heimilanna. „Því miður er þar af nógu að taka.“
Lesa meira
Auður Guðjónsdóttir

Vísir.is – Saga af heilbrigðisráðherra

By Gudlaugurthor On November 23, 2012 · Add Comment · In Greinar, Heilbrigðismál, Prófkjör
Tweet
Auður Guðjónsdóttir stjórnarformaður Mænuskaðastofnunar Íslands skrifar 23.11.2012: Í tilefni prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík langar mig að deila eftirfarandi sögu með lesendum. Eins og ýmsum er kunnugt hef ég mörg undanfarin ár beitt mér fyrir því að íslensk stjórnvöld tali í þágu lækninga á mænuskaða á alþjóðavísu. Í því sambandi hef ég þurft að hafa töluverð samskipti við heilbrigðisráðuneytið, nú velferðarráðuneytið. Þegar Guðlaugur Þór Þórðarson varð heilbrigðisráðherra þá leist mér ekkert á blikuna. Mér fannst vera kominn unglingur í ráðuneytið og taldi að nú væri verkefnið ónýtt. En ég var fljót að skipta um skoðun. Guðlaugur Þór kom mér mjög á óvart. Hann var afar viðfelldin og hlýr persónuleiki. Hann var einstaklega framsýnn og velviljaður og gaf sér nægan tíma til að hlusta á mig lýsa hugsjón minni. Hann beitti sér fyrir því að ráðuneytið varð einn stofnaðila Mænuskaðastofnunar Íslands. Hann notaði persónuleg sambönd sín til hjálpar við að koma stoðum [...]
Lesa meira
Jóna Gróa Sigurðardóttir

Mbl. – Hvers vegna Guðlaug Þór í 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík ?

By Gudlaugurthor On November 23, 2012 · Add Comment · In Greinar, Heilbrigðismál, Prófkjör
Tweet
Jóna Gróa Sigurðardóttir fyrrverandi borgarfulltrúi skrifar í Morgunblaðið 23.11.2012 Við þurfum alþingismann sem lætur hendur standa fram úr ermum og lætur verkin tala. Það er ekki nóg að hafa skýra framtíðarsýn og góðar hugmyndir, það þarf kraft, dugnað og úthald til að koma þeim í framkvæmd. Þar hef ég Guðlaug Þór í huga. Hann er einkar þægilegur og góður í mannlegum samskiptum sem er nauðsynlegt við lausn erfiðra mála. Litlu er áorkað nema í samstarfi við aðra. Guðlaugur Þór settist á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn árið 2003 og hefur verið falin fjölmörg trúnaðarstörf á vegum Þingsins. Hann hefur m.a. setið í heilbrigðis-,félagsmála-, sjávarútvegs-, umhverfis-, efnahags- og viðskiptanefnd. Hann var heilbrigðisráðherra á árunum 2007-2009 og sýndi af sér mikið frumkvæði og alúð við málaflokkinn. Hann hrinti af stað veigamiklum umbótum, í góðu samstarfi við heilbrigðisstéttirnar, sem skiluðu miklum sparnaði fyrir heilbrigðiskerfið. Breytingarnar skiluðu þeim árangri að rekstrarhalli spítalans varð 1% árið [...]
Lesa meira
Erla María Tölgyes

Mbl. – Af ástríðu og ofvirkni

By Gudlaugurthor On November 22, 2012 · Add Comment · In Greinar, Prófkjör
Tweet
Ísak Einar Rúnarson og Erla María Tölgyes skrifa 22.11.2012 Það er sjaldan sem maður hittir ofvirka ástríðumenn með höfuðið á réttum stað. Einn af þeirri tegund er okkur þó ofarlega í huga nú um stundir, en það er hann Guðlaugur Þór Þórðarson. Við þekkjum hann reyndar bara sem Gulla. Ástríða Það fer ýmsum sögum af ráðherrum sem koma inn í ný ráðuneyti og ekki er sjálfgefið að þeir sýni málefnum þess mikinn áhuga heldur líti frekar á starfið sem þægilega innivinnu með sæmilegu starfsöryggi. Í tilviki Gulla er fátt jafnfjarri lýsingunni hér að ofan. Það er til fræg saga af Gulla að þegar hann tók við heilbrigðisráðuneytinu hafi hann haft það að yfirlýstu markmiði að komast í hóp mestu sérfræðinga um heilbrigðismál á Íslandi. Ekki einungis tókst Gulla það heldur hafa heilbrigðismálin sjaldan staðið jafnvel og í hans tíð. Reyndar mætti segja að þau hafi staðnað síðan Gulli [...]
Lesa meira
  • ← Previous Entries
  • Staða umferðarmála á höfuðborgarsvæðinu

  • Atvinna og efndir

  • lanareiknir-01
  • Sjálfstæðisflokkurinn:

  • Síðustu færslur

    • Visir.is – Ólíklegt að nauðasamningar klárist fyrir kosningar
    • Visir.is – Mistök í nauðasamningum myndu hafa gríðarleg áhrif á íslensk heimili
    • Vb.is – Guðlaugur Þór vill fá svör um hve stórt hlutfall af tekjum greiðendur auðlegðarskatt þurftu að reiða fram
    • Fyrirspurn til forsætisráðherra um hækkun á skuldum heimilana vegna skattahækkana ríkisstjórnarinnar – myndband
    • Mbl.is – Hækkar lán heimilanna um 3 milljarða
  • Leitarorð

    alþingi Bankasýsla ríkisins Bylgjan Byr erlend lán ESB fjárlög fjármálaráðherra FME forsætisráðherra fyrirspurn Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðismál heilbrigðisnefnd heilbrigðisráðherra Heimastjórnin Icesave innanríkisráðherra INNTV Jóhanna Sigurðardóttir Landsdómsmálið lífeyrissjóðir myndband Ragnheiður Ríkharðsdóttir Reykjavík RÚV Ríkisstjórnin Samfylkingin Seðlabankastjóri Seðlabankinn Sjálfstæðisflokkurinn Sjóvá skattamál SpKef Steingrímur J. Sigfússon svar við fyrirspurn velferðarráðherra Vestia VG Vinstri grænir Viðskiptanefnd viðtal Íbúðalánasjóður Ögmundur Jónasson Össur Skarphéðinsson
  • Hættulegustu vegir á Íslandi

    Skoða fleiri kynningar á GudlaugurThor
  • Annað

    • Log in
    • Entries RSS
    • Comments RSS
    • WordPress.org
Lögreglumennirnir við þinghúsið voru hetjur dagsins!  — gudlaugurthor

Pages

  • Forsíða
  • Um Guðlaug Þór
  • Greinar
  • Alþingi
  • Myndbönd
  • Fjölmiðlaumfjöllun

The Latest

  • Visir.is - Ólíklegt að nauðasamningar klárist fyrir kosningar
    visir.is 9.1.2013 : Litlar líkur eru á því að nauðasamningar við kröfuhafa […]

More

Þeir sem vilja styrkja framboð Guðlaugs Þórs geta lagt inn á reikning í Landsbanka Íslands nr. 0114-26-241112, kt. 451102-2060
© 2012 gudlaugurthor.is