Fréttir
Það er ómögulegt að átta sig á Evrópustefnu ríkisstjórnarinnar. Flestir skildu að það væri stefna ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur að gangi í Evrópusambandið þegar þau fengu samþykkt að fara í aðildarviðræður...
Ekki vil ég gera lítið úr fréttamati líðandi stundar en ég vil benda á að samkvæmt fjárlögum þessa árs þá á ríkissjóður að greiða um 100 milljarða í vaxtagreiðslur samanborið við 87 milljarða árið 2009. Tekjur...
Forstöðumanni ríkisstofnunar hótað brottrekstri fyrir að sinna starfi sínu af samviskusemi og nákvæmni.Aðilum sem kaupa afurðir af bændum utan kerfis hótað fangelsisvist.Einkarekstur í heilbrigðisþjónustu ofsóttur.Ráðherra reynir að telja þjóðinni trú...
Vinur minn evrópuþingmaðurinn Daniel Hannan er í heimsókn á Íslandi. Við kynntumst árið 1994 þegar að ég var formaður SUS. Hann hefur heimsótt landið nokkrum sinnum síðan og látið sig hag þess varða. Hann er t.d einn af sárafáum kjörnum fulltrúum...
Kristján Möller samgönguráðherra kýs að fara rangt með í grein sinni er birtist á Pressunni í gær, þar sem hann svarar skrifum mínum um fjárframlög í samgönguáætlun og virðist ekki hafa áhuga á að fjalla málefnalega um málið. Ég...
Lítið hefur verið rætt um fjögurra ára samgönguáætlun. Er það miður því að samgönguáætlun er mjög mikilvæg. Margt gott er í núverandi áætlun en því miður vantar mikið upp á að hún standist þær kröfur sem...
Styrkir til einstaka frambjóðenda stjórnmálaflokka, sem og til stjórnmálaflokka í heild, hafa verið töluvert í umræðunni að undanförnu. Í viðtali í Kastljósi nýlega greindi ég frá því að ég myndi kanna hvort þeir aðilar sem styrktu...
Ekki þarf að fara mörgum orðum um það hversu mikil áhrif skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis hefur á umræðuna í landinu. Flestum er ljóst að hún er ekki fullkomið plagg frekar en önnur mannanna verk en nær öllum er ljóst mikilvægi þess að þær...
136. löggjafarþing 2008–2009.Þskj. 600 — 302. mál.Svar heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar um sameiginlega sjúkraskrá fyrir landið allt. Fyrirspurnin hljóðar svo: Hvernig hyggst ráðherra fylgja eftir tillögum stýrihóps um...
Svar mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar um rekstur Ríkisútvarpsins ohf. 1. Hver er heildarkostnaður eftirfarandi liða hjá Ríkisútvarpinu ohf. sl. þrjú starfsár, sundurliðað eftir árum miðað við sjónvarp og...
Ég hef áhyggjur af því að þau úrræði sem að ríkisstjórnin lagði upp með í október til að vernda heimilin hafa ekki reynst duga nógu vel. Svarið er staðfesting á þvi einungis 277 heimili hafa fengið sértæka skuldaaðlögun! Það...
Fyrirspurn til forsætisráðherra um áminningar til embættismanna. Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni. 1. Hversu mörg bréf um áform um áminningu til embættismanna hafa ráðherrar sent og hvaða ástæður hafa verið fyrir slíkum áformum?2. Hversu mörg...
Fréttir berast af því að mikill meirihluti þjóðarinnar muni segja nei í þeirri þjóðaratkvæðagreiðslu sem að nú fer fram. Það er ánægjulegt vegna þess að viðsemjendur okkar eru hræddir við að þjóðin muni mæta á...
http://www.inntv.is/index.php?option=com_n-thattur&do=watch&vid=1660&id=5&Itemid=27...
http://dagskra.ruv.is/ras2/4519056/2010/02/08/0/...
Mikil umræða var um dagskrá þingsins var við þingbyrjun í dag. Ekki er gert ráð fyrir að ræða efnhagsmál næstu tvær vikurnar í það minnsta. Þess í stað eru sett á dagskrá mál sem að flestum þykja smámál í samanburði við...
Verð í viðtali kl.8 á mánudagsmorgun á útvarpi. Sá geðþekki útvarpsmaður Markús er þar með þáttinn sinn Rödd alþýðunnar....
Fundaferðin heldur áfram: Fundur í Golfskálanum í Grafarholti - þriðjudaginn 26. janúar kl. 20.30...
http://www.inntv.is/index.php?option=com_n-thattur&do=watch&vid=1627&id=5&Itemid=27...
Athygli vakti að Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra íslensku þjóðarinnar lýsti því yfir að hann ætlaði ekki að halda á töskum fyrir forsetann á ferð hans á Indlandi. Ástæðan fyrir því að utanríkisráðherrann...
Forseti lýðveldisins Ólafur Ragnar Grímsson hefur ákveðið að skrifa ekki undir Icesave lögin svokölluðu. Hann beitti nákvæmlega sömu rökum fyrir ákvörðun sinni og hann gerði árið 2004 þegar hann skrifaði ekki undir fjölmiðlalögin. Um það fjallaði...
Samfylkingin og VG höfðu hátt um það þegar að þessir flokkar voru í stjórnarandstöðu hversu mikilvægur Landspítalinn væri. Í stuttri stjórnartíð sinni hafa þessir flokkar gengið mjög gegn starfsfólki og stjórnendum spítalans með ófaglegum...
Að gefnu tilefni vill undirritaður svara rangfærslum í fréttatilkynningu félagsmálaráðuneytis um yfirfærslu heilbrigðisþjónustu frá heilbrigðisráðuneyti til félags- og tryggingamálaráðuneytisins. 1. Í fréttatilkynningu ráðuneytis er því...
http://www.althingi.is/altext/hlusta.php?raeda=rad20091214T234916&horfa=1...
Starfshópur á vegum heilbrigðisráðuneytisins hefur reiknað út tillögur sem kenndar eru við Huldu Gunnlaugsdóttur um skipulagsbreytingar á milli LSH og kragaspítalanna. Enn og aftur er það staðfest að það er hægt að spara gríðarlega fjármuni án þess að...
Ég hlustaði á tvo reynda fjölmiðlamenn í spjalli á Bylgjunni í morgun. Þeir voru að tala um Icesave og voru sammála um að við Íslendingar þyrftum ekki að borga þann reikning! Þetta snerist um það hvort við tækjum á þessum vanda þ.e.a.s samskiptunum við...
http://www.inntv.is/index.php?option=com_n-thattur&do=watch&vid=1546&id=5&Itemid=27...
Beiðni um skýrslu viðskiptanefndar um samræmingu reglna um afskriftir og endurskipulagningu fyrirtækja í fjárhagsvanda Fulltrúar stjórnandstöðunnar í viðskiptanefnd, Guðlaugur Þór Þórðarson, Eygló Harðardóttir, Ragnheiður Elín Árnadóttir og...
http://www.inntv.is/index.php?option=com_n-thattur&do=watch&vid=1546&id=5&Itemid=27...
http://www.althingi.is/altext/hlusta.php?raeda=rad20091103T140403&horfa=1...
http://www.ruv.is/heim/ahugavert/nanar/store218/item309975/...
Fyrir nokkrum vikum samþykkti Alþingi Íslendinga lög um ríkisábyrgð í tengslum við samning sem að ríkisstjórn Íslands hafði samþykkt við tryggingasjóði Breta og Hollendinga. Ríkisábyrgðin var með mörgum fyrirvörum.Við það tækifæri...
Það er skrýtið ástand í stjórnmálunum í dag. Yfirlýsingar ráðherra sem áður hefðu þótt uppsláttarmál hverfa í fjölda sérkennilegra pólitískra frétta. Það er því ekki að undra að...
Mikla athygli vakti að í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar er gert ráð fyrir 16 milljarða króna umhverfi- orku og aðlindaskatti.Iðnaðarráðherra ríkisstjórnarinnar reyndi að róa landsmenn og sagði í samtali við fréttastofu Ríkissútvarpsins að:• Ekki...
Mikil tíðindi urðu í dag. Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra lauk 12 ára valdatíð sinni (hann hafði lýst því yfir að hann yrði 12 ár í heilbrigðisráðuneytinu). Þessi 12 ár voru reyndar afar fljót að líða. Flestir eru sammála...
Ákvörðun umhverfisráðherra Svandísar Svavarsdóttur að fella úr gildi ákvörðun Skipulagsstofnunar er enn ein staðfestingin á því að vinstri stjórnin ætlar að framlengja kreppuna!...
Margir velta því fyrir sér, af hverju í þessu árferði ættu Íslendingar að byggja háskólasjúkrahús? Því er til að svara, að í fyrsta lagi er starfsemi háskólasjúkrahússins nú á sextán stöðum í borginni. Mikið af...
Ég fylgdist með sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra ríkisstjórnarinnar í Kastljósi í kvöld. Þar varði hann þá skoðun sína að samráð væri réttlætanlegt og að samkeppnislög væru arfur fortíðar og ekki í anda...
Það var athyglisvert að skiptast á skoðunum við Ögmund Jónasson heilbrigðisráðherra í kvöld. Nú talar hann um að stefnumótunin sem að ég kynnti í byrjun árs og hann barðist hvað harðast gegn höfðu bara ekkert með mig að gera! Mjög...
Það er greinilegt að ríkisstjórnarflokkarnir eiga erfitt með að standa frammi fyrir eigin verkum varðandi Icesave-samningana. Í stað þess að standa í lappirnar og mynda skjaldborg um íslenska þjóðarhagsmuni reyna þeir nú rugla umræðuna og koma ábyrgðinni á...
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra fór mikinn í kvöldfréttum. Í fréttum kom fram að hún undrist viðbrögð stjórnarandstöðunnar í icesavemálinu og segir að þau kalli á ,,endurskoðun“ á samskiptum ríkisstjórnarinnar...
Ef marka má fréttir í fjölmiðlum þá hafna Bretar og Hollendingar fyrirvörum þeim sem fram komu í lögum um ríkisábyrgð sem alþingi íslendinga samþykkti fyrir nokkrum vikum síðan. Viðbrögð forystumanna ríkisstjórnarinnar minna mjög á...
Nokkur umræða hefur verið um lækkun á lyfjum. Þess vegna set ég hér inn kynningu um hvað við sjálfstæðismenn gerðum í lyfjamálum. Árangurinn er enn að koma fram.lyfjaarangur.ppt...
Enn ein fréttin um hægagang núverandi ríkisstjórnar birtist á Pressunni í gær undir fyrirsögninni; ,,Lífeyrissjóðir bíða með milljarða: Ríkisstjórnin fer seint af stað með verkefni fyrir þá“.Þar kemur fram að;Lífeyrissjóðirnir...
Steingrímur J. Sigfússon fór mikinn í Kastljósi fyrir helgi. Nauðvörn ráðherrans var alger og greip fjármálaráðherrann m.a. til ósanninda t.d. þegar að hann hélt því fram að þjóðin fengi að ákveða hvort að Ísland gengi í ESB...
Það hefur farið fram hjá mörgum í umræðum um ESB málin að ríkisstjórnarflokkarnir felldu tillögu um að íslenska þjóðin fengi að greiða atkvæði um væntanlegan samning um inngöngu Íslands í ESB. Rök forystumanna ríkisstjórnarinnar voru...
Við lifum á sérstökum tímum. Ekki aðeins hafa Íslendingar fundið harðar fyrir fjármálakreppunni en aðrar þjóðir því að auki stöndum við í harðvítugustu milliríkjadeilu sem að þjóðin hefur lent í síðan í...
Ríkisstjórnin leggur mikið á sig til að öðlast vinsældir. Helsta viðfangsefni ráðherranna er að finna einhver lítil mál sem gætu verið vinsæl til að athyglin beinist ekki að hversu lítið þeir ráða við það verkefni sem þeim var falið. Dæmi...
http://www.inntv.is/Þátturinn byrjar rólega en síðan fer að hitna í kolunum. Umræðuefnið er Icesave, nema hvað....
http://www.inntv.is/Horfaáþætti/Neytendavaktin/Neytendavaktin17062009/tabid/909/Default.aspx...
http://www.ruv.is/heim/ahugavert/nanar/store218/item286301/...Lesa meira ...
http://www.inntv.is/Horfaáþætti/Hrafnaþing/Hrafnaþing11062009/tabid/877/Default.aspx...
Mikil samstaða er meðal Kjalnesinga um úrbætur í umferðaröryggismálum. Ástæðan er einföld. Mikill hraðaakstur er í gegnum þetta hverfi Reykjavíkur sem að framkallar mikla slysahættu fyrir íbúana og þá sérstaklega börnin í hverfinu. Víða...
Í morgun var sameiginlegur fundur í Viðskiptanefnd og Efnahags- og skattanefnd. Til umfjöllunar var Icesavesamkomulagið. Sendinefnd undir forystu pólitísks aðstoðarmanns fjármálaráðherra Indriða Þorlákssonar kynnti okkur samkomulagið. Margt athyglisvert kom þar fram en það sem stendur...
Nýtt met var sett í spuna í þinginu í gær. Skyndilega er kallað til þingflokksfundar kl. 11 til að ræða Icesave málið. Við Sjálfstæðismenn fengum formann Saminganefndarinnar Svavar Gestsson sem að spjallaði við okkur í stutta stund sökum þess að hann var á...
Í síðustu viku var breyting á lögum um fjármálafyrirtæki keyrð í gegn um þingið með miklum hraða. Viðskiptaráðherra talaði fyrir frumvarpinu á þriðjudag og málið tekið fyrir í viðskiptanefnd á miðvikudag og afgreitt út úr...
Allir þekkja þann vanda sem við íslendingar stöndum frammi fyrir í dag. Í örstuttu máli má lýsa vanda fyrirtækjanna með þeim hætti að skuldir þeirra í kjölfar falls krónunnar eru það miklar að mjög erfitt er fyrir þau, og í mörgum tilfellum...
Það er sérstakt að hlusta á stefnuræðu forsætisráðherra og umræðu um hana. Ég verð að viðurkenna að ég vonaðist til að forsætisráðherra myndi koma fram með lausnir við þeim vanda sem að allir eru sammála um að þurfi að taka á...
Það er furðulegt að fylgjast með vinstri flokkunum við þessar mundir. Þeir virðast vera þeir einu á Íslandi sem telja að ekki liggi á að vinna að hag heimilanna og fyrirtækjanna. Öllum mátti vera ljóst að það að fara í kosningar tafði nauðsynlega vinnu fyrir...
Göran Persson fyrrverandi forsætisráðherra Svíþjóðar kom hingað til lands í kjölfar bankahrunsins. Hann miðlaði okkur af reynslu Svía sem að lentu í alvarlegri fjármálakreppu fyrir 15 árum. Göran var fjármálaráðherra á þeim tíma og í...
Oddviti Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi fylgdi í kjölfar formanns flokksins og gagnrýndi ríkisstjórnina harðlega fyrir aðgerðaleysi. Í fréttum Rúv er eftirfarandi frétt: ,,Ríkisstjórnin brást trausti Framsóknarflokksins með aðgerðarleysi....
Það er öllum ljóst að Davíð Oddsson er mjög umdeildur á meðal þjóðarinnar. Ef að hann tjáir sig á opinberum vettvangi þá eru margir tilbúnir að ráðast á hann og gagnrýna harkalega. Vafalaust á hann það oft skilið og ég er...
Bjarni Benediktsson var kosinn formaður Sjálfstæðisflokksins í dag. Hlaut hann mjög góða kosningu en kosið var á milli hans og Kristjáns Þórs Júlíussonar. Kristján Þór getur samt sem áður vel við unað. Hann tilkynnti um framboð sitt til formanns fyrir sjö...
Landsfundur var settur í gær. Fundurinn markar tímamót. Geir H. Haarde sem hefur verið einn farsælasti forystumaður í íslenskum stjórnmálum hættir sem formaður og ný forysta tekur við.Ræða formannsins við setningu fundarins var áhrifamikil. Hann fór yfir umræðuna fyrir...
Fékk svar í dag við fyrirspurn er ég beindi til viðskiptaráðherra 26. febrúar um lausnir á vanda fólks í greiðsluerfiðleikum vegna húsnæðiskaupa. Viðskiptaráðherra upplýsti að málið væri nefnd! Mikið er gott að vita að málið er í...
Það er athyglisvert að fylgjast með fréttum af því að Vigdís Hauksdóttir lögfræðingur hafi verið látin hætta sem lögfræðingur ASÍ vegna þess að hún er í ,,öruggu þingsæti fyrir næstu alþingiskosningar. DV greindi frá þessu...
Vinstri grænir fara mikinn á sínum landsfundi. Þeir vissu þetta allt saman.Það er mjög alvarlegt þar sem að þeir gripu ekki til þeirra ráðstafanna sem allir hefðu gripið til sem að sáu þessa hluti fyrir.Einn valdamesti maður landsins er Ögmundur Jónason Hann er...
Ómar Valdimarsson bloggar:Brandarakelling VG20.3.2009 | 16:52Nú sem aldrei fyrr er þörf á öflugum vefmiðli sem lýtur ritstjórnarstefnu okkar, þó að sjálfsögðu sé um óháðan miðil að ræða.“Mogginn hefur þetta 'new speak' í dag eftir Drífu...
Lítið hefur farið fyrir umræðu um nýtt Háskólasjúkrahús að undaförnu. Það vita hinsvegar allir hversu mikilvægt það er að bæta húsakost Landspítalans en slík framkvæmd er ekki einungis nauðsynleg sökum þess að mikið af húsnæði...
Ég vil nota tækifærið og þakka ykkur fyrir frábæran stuðning í prófkjörinu. Það voru fleiri hundruð mans sem að lögðu á sig vinnu fyrir framboðið. Sumir unnu að manni fannst dag og nótt þessar tvær vikur sem að baráttan tók. Árangurinn var...
Nú er dagurinn runninn upp. Stutt og snörp kosningabarátta að baki. Ég er innilega þakklátur ykkur öllum sem hafa lagt mér lið í þessari baráttu. Ég hvet allt sjálfstæðisfólk til að taka þátt og hafa áhrif. Það verður heitt á könnuni...
Ágætu Reykvíkingar!Sem borgarfulltrúi, alþingismaður og ráðherra hef ég öðlast víðtæka reynslu af stjórnmálum. Í störfum mínum hef ég ávallt fylgt þeirri sannfæringu að ganga eigi hreint til verks við að leysa þau verkefni sem við er...
Ég er búinn að sjá niðurstöður úr tveimur könnunum í dag og hef þetta að segja um þær. Í fyrsta lagi er starfið í prófkjörsslagnum að skila okkur góðum árangri. Ég er verulega ánægður með það. Ég bendi mínu...
Stuðningsmenn Guðlaugs Þórs létu framkvæma könnun um stuðning í fyrsta sætið. Þar kemur fram að 45% sögðust ætla að kjósa Guðlaug en 35% Illuga Gunnarsson.Sjá fréttir um málið:Vísir.isEyjan.isMbl.is...
Sjálfstæðisflokkurinn stendur á tímamótum. Eftir hartnær 18 ára setu í ríkisstjórn göngum við til kosninga í stjórnarandstöðu enda hefur hið alþjóðlega efnahagshrun og hin íslenska bankakreppa unnið trúverðugleika flokksins mikinn skaða....
Í frétt á Pressunni í dag er fjallað um kostnað einstakra ráðuneyta vegna aðkeypts sérfræðikostnaðar á síðasta ári.Í fréttinni kemur fram að kostnaður vegna kaupa á sérfræðiþjónustu var mestur í forsætisráðuneytinu....
Höfundar: Sveinn Geir Einarsson, MD PhD yfirlæknir, Guðjón Sigurðsson, formaður MND félagsins, Vigfús Bjarni Albertsson sjúkrahúsprestur og Ingibjörg Hauksdóttir hjúkrunarfræðingur.Guðlaugur Þór Þórðarson, fyrrverandi heilbrigðisráðherra gefur kost á...
Íslensk heimili og fyrirtæki þurfa á tafarlausum aðgerðum að halda. Vandi þeirra er gífurlegur vegna aukins atvinnuleysis, hárrar verðbólgu, gengisfalls íslensku krónunnar og hás vaxtastigs. Heimilin kalla á aðgerðir þar sem ráðstöfunartekjur duga í mörgum...
Ég var í þættinum hjá Ingva Hrafni á þriðjudagskvöldið. Horfa má á þáttinn hér: vefmidlar.visir.is/VefTV/ og á Facebook síðunni minni síðar í dag. Reyndar átti mótframbjóðandi minn að mæta líka. Ég velti fyrir mér...
Guðlaugur Þór Þórðarson býður nú fram krafta sína sem leiðtogi sjálfstæðismanna í Reykjavík í prófkjörinu, sem fram fer um næstu helgi, en hann hefur undanfarin misseri hlotið eldskírn í erfiðu embætti heilbrigðisráðherra....
Þekking, framtíðarsýn, trúverðugleiki, þor og seigla.Guðlaugur Þór hefur þá fjóra eiginleika sem leiðtogi þarf að hafa til að ná árangri. Sjá stuðningsyfirlýsingu Árna...
Það eru mikil tíðindi þegar að formaður í næst stærsta flokki landsins ákveður að draga sig í hlé. Hugur okkar er hjá Ingibjörgu Sólrúnu og hennar fjölskyldu og vonandi nær hún fullri heilsu sem allra fyrst. Ég hef starfað með henni í...
Mikið var um að vera á kosningaskrifstofunni í dag. Ég var þar í nær allan dag og tók á móti fólki með Ágústu ásamt því að taka nokkur símtöl. Tók þátt í knattspyrnuleik gegn knattspyrnufélaginu Styrmi. Unnum með þrem...
Góð stemning ríkir á kosningaskrifstofu Guðlaugs Þórs og mikið af fólki hefur lagt leið sína þangað um helgina. Allir eru velkomnir að líta við í spjall í Ármúla 18, heitt á könnunni og vöfflur í allan...
Sjálfstæðisflokkurinn er á flugi, fólkið okkar er í fullri vinnu við að finna lausnir og úrræði sem virka. Starfið sem er nú verið að vinna í endurreisnarnefnd flokksins er ómetanlegt og sýnir svo ekki verður um villst að krafturinn, þekkingin og þrótturinn er...
Síðastliðin tvö ár hafa heilbrigðismál átt hug minn allan. Stefna mín sem heilbrigðisráðherra hefur verið að færa heilbrigðiskerfið inn í 21. öldina; nýta fjárfestingar betur, bæta þjónustuna og auka hag sjúklinga. Þegar ég tók við...
Átak útvarpsstöðvarinnar Bylgjunnar þessa vikuna er frábært og til eftirbreytni. Við höfum gleymt okkur of mikið í neikvæðninni, látið ástandið ná til okkar í of ríkum mæli og nú þarf að snúa af þeirri braut. Átak Bylgjunnar er vonandi...
Geir Haarde var góður í viðtali í sjöfréttunum á RÚV þar sem hann skýrði það á einfaldan hátt hvers vegna við sjálfstæðismenn erum ekki að styðja frumvarp um persónukosningar á þessu þingi. Það er einfaldlega ekki forgangsmál og...
Hér má sjá myndband sem sett var saman úr upptökum frá opnun skrifstofunnar á laugardaginn. Þetta er að finna á vef YouTube, sem er hreint frábært að geta nýtt sér til að koma skilaboðum á framfæri.Smellið á hlekkinn hér: http://www.youtube.com/gudlaugurthor...
Það var gaman að sjá hversu margir sáu sér fært að mæta við opnun kosningaskrifstofunnar í Ármúlanum. Einhver giskaði á 5-600 manns. Það var líf og fjör og mér þykir vænt um allar þær kveðjur og hvatningar sem mér bárust. Þetta held...
Krafan í dag er ábyrgð. Við eigum að sýna ábyrgð í uppgjörinu við fall fjármálakerfisins og við eigum að sýna ábyrgð í uppbyggingunni eftir áfallið. Í stefnupunktum fyrir prófkjörið segi ég að sjálfstæðisstefnan sé...
Rétt eins og áætlanir fyrri ríkisstjórnar gerðu ráð fyrir er verðbólgan á hraðri niðurleið. Viðsnúningurinn er talsverður, og líkt og margir bentu á í umræðunni hefur þetta verið erfið en nauðsynleg þrautaganga. Nú horfir hinsvegar til betri...
Ég sé að DV telur okkur Illuga eiga í blóðugu stríði um kjósendur flokksins í Reykjavík. Ég veit að barátta okkar félaganna verður öflug, en ekki verður hún blóðug, hvernig sem DV eða aðrir reyna að æsa til illinda. Þannig er málum einfaldlega...
Framsóknarmaðurinn G. Valdimar skrifaði á bloggið sitt í dag:Höskuldur fór ekkert.... það gerði Össur24.2.2009 | 13:11Ríkisstjórnin er varin vantrausti af Framsóknarflokknum. Það var gert með ákveðnum skilyrðum meðal annars um stjórnlagaþing, kjördag og...
Var á fundi endurreisnarnefndar í Valhöll í hádeginu. Þar voru hópstjórar að kynna vinnuna í hópunum. Augljóslega mjög gott starf og margir sem koma að því. Hvet alla til að fara inn á xd.is og kynna sér endurreisnarvefinn.Besta leiðin til að vinna okkur út...
Hér eru upplýsingar frá árinu 2005. Þá tók Ríkisendurskoðun saman tölur vegna fyrirspurnar Jóhönnu Sig. http://www.rikisend.is/files/skyrslur_2005/serfraedithjonusta_2005.pdfÞar kemur fram að svokallaður sérfræðikostnaður nam á árinu 2003 rúmlega 5...
Það er ljóst að núverandi heilbrigðisráðherra einbeitir sér fyrst og fremst að því að koma höggi á undirritaðan í stað þess að hugsa um heilbrigðismál, enda málaflokkurinn flókinn og erfiður og ýmsar aðgerðir sem nú eru nauðsynlegar...
Því miður hefur núverandi heilbrigðisráðherra ákveðið að draga til baka ákvarðanir um sameiningu heilbrigðisstofnana og skipulagsbreytingar. Það var farið út í þær breytingar til að vernda heilbrigðisþjónustuna og störf heilbrigðisstarfsmanna. Stofnunum...
Björn Bjarnason segir á bloggsíðu sinni að engin hafi lagt meira á sig til að vinna prófkjör en undirritaður. Það er skemmst frá því að segja að ég hef alltaf lagt mjög mikið á mig í mínu pólitíska starfi. Ég hef iðulega þurft að hafa...
Fjöldi frambjóðenda í prófkjöri okkar sjálfstæðismanna í Reykjavík fór framúr okkar björtustu vonum. Tuttugu og níu bjóða sig fram sem er það mesta sem að ég man eftir. Þetta er glæsilegur hópur fólks með fjölbreyttan bakgrunn.Þessi...
Guðlaugur Þór býður sig fram í 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík„Við sjálfstæðismenn göngum til kosninga með jákvæðum huga og viljum vinna að uppbyggingu og móta framtíðarsýn í anda þess...
Kosningaskrifstofa að Ármúla 18 Kosningaskrifstofa Guðlaugs Þórs er til húsa að Ármúla 18. Skrifstofan verður opin virka daga kl. 14-22 og kl. 10-20 um helgar. Stuðningsmenn eru velkomnir að líta inn. Formleg opnun skrifstofunnar verður laugardaginn 28. febrúar kl. 13. Nánar um það...