Þetta er mjög harkaleg fyrirsögn en staðreyndin er að það skiptir máli hvernig vegir eru hannaðir.

Við getum komið í veg fyrir slys með því að hafa vegi vel hannaða.

Við getum komið í veg fyrir slys með því að forgangsraða í þágu umferðaröryggis.

Það sem meira er við eigum góðar upplýsingar um hvaða vegir eru hættulegir og hverjir eru öruggir.

Það er búið að taka út alla helstu vegi á Íslandi, nánar tiltekið um 4000 vegi. Þeir hafa verið flokkaðir eftir áhættu og við eigum líka upplýsingar um slys á vegum.

Hér koma 10 áhættumestu vegakaflar á Íslandi á árunum 2001-2008

Sjá glærur 1-5

Hér koma 10 slysamestu vegakaflarnir 2001-2008

Sjá glærur 6-7

Þjóðarsátt um fækkun slysa!

Kjördæmanúningur í samgöngumálum er engum til gagns. Það skiptir engu máli á hvaða vegi, eða í hvaða kjördæmi slys verða. Það skiptir engu máli hvar sá sem verður fyrir slysi á lögheimili. Það er alltaf jafn alvarlegt!

Tökum höndum saman og forgangsröðum í þágu fólksins. Setjum umferðaröryggismál í öndvegi og vinnum eftir því.

Það er stefna sem allir hagnast á.

Share →